Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:18:34 (4027)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Í þessum lið, b-lið, við 8. brtt. 515 er í raun og veru komið það brot sem eftir er af loftköstulum ríkisstjórnarinnar í sambandi við aukið fjármagn til viðhaldsverkefna. Það var í upphafi tilkynnt að það yrðu 500 millj. en það sem eftir er eru 100 millj. kr. sem eiga að fara til þessara viðhaldsverkefna. Þar sem ég get ómögulega verið á móti því að það verði þó a.m.k. þessar 100 millj. kr. lagðar í það, þá segi ég já.