Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:28:22 (4031)

     Karl Steinar Guðnason :
    Frú forseti. Það er samgn. sem sér um úthlutun á þessum styrkjum og það er skoðun mín að það hafi verið staðið betur að verki nú en oft áður. Tilfellið er að sumir sem fengu styrk á síðasta ári sóttu þá ekki. Aðrir sóttu ekki um og það hlýtur að vera matsatriði hverju sinni hversu upphæðirnar eiga að vera háar. Það fer eftir árferði og öðru og þess vegna held ég að það sé mun betri leið að hafa meira óráðstafað og geta hlaupið þá til og gert betur ef sérstaklega á stendur.
    Ég vil aðeins árétta að það er verið að taka upp ný og betri vinnubrögð og segi því já.