Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:51:44 (4042)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta finnst út af fyrir sig ánægjulegt að menn geta brosað og jafnvel hlegið, en nú fer fram atkvæðagreiðsla og við þurfum að hafa ró í salnum og beina huganum að atkvæðagreiðslunni en ekki efnislegum umræðum og það vill forseti ítreka einu sinni enn.