Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:53:13 (4044)


     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Hér er um framkvæmd að ræða sem er ákaflega mikilvæg fyrir framtíð byggðar og framtíð atvinnulífs á Blönduósi. Hér er um að ræða framkvæmd sem er mjög hófleg að vexti og kostnaði og þær kostnaðartölur sem hér hafa verið nefndar í atkvæðagreiðslunni eru rangar. Allar horfur eru á að góð eining takist um þessa framkvæmd. Ég er ákaflega ánægður með þá tillögu sem hv. fjárln. gerir í málinu og ég segi já.