Fjárlög 1993

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 17:58:42 (4047)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Hæstv. forseti. Mér finnst alveg nóg að gert við að bæta álögum á þá landsmenn sem búa við hæsta orkuverð í landinu. Hér er verið að fella niður þær 80 millj. kr. sem áttu að fara til niðurgreiðslu á húshitun samkvæmt fjárlagafrv. Ég segi nei.