Afstaða Spánar til EES-samningsins

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 18:24:57 (4053)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill benda á að EES-málið er ekki á dagskrá þessa fundar. Hér hafa fjórir hv. þm. beðið um orðið um gæslu þingskapa og forseti óskar eftir því að ekki verði farið hér út í efnislegar umræður um EES-samninginn eða það mál, heldur ef menn vilja tala um gæslu þingskapa, þá sé það gert. Hins vegar vill forseti benda á að það er meiningin að fresta þessum fundi til kl. hálfníu í kvöld.