Byggingarframkvæmdir við sjúkrahúsið á Ísafirði

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 20:46:10 (4064)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Fundi er fram haldið og hefst nú utandagskrárumræða eins og áður hafði verið tilkynnt. Hún fer fram að beiðni hv. 6. þm. Vestf. og fjallar um vinnubrögð heilbrigðisráðherra við afgreiðslu á tilboðum í byggingarframkvæmdir við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Þessi umræða fer fram eftir fyrri mgr. 50. gr. þingskapa sem þýðir hálftíma umræða.