Málefni aldraðra

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 23:39:42 (4091)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vona svo sannarlega að bókhaldið yfir þessar byggingar sé svo nákvæmt að það sé alveg dagljóst í hvað peningar Framkvæmdasjóðs fyrir aldraða fóru, en grun hef ég nú um að fé hafi einfaldlega verið notað í það sem þurfti og þá ekkert síður eldhúsinnréttingar heldur en nokkuð annað. Mér er nokkuð sama hvort það var notað í þær eða bílageymslurnar eða annað slíkt sem á að heita sameiginlegt í þessum húsum og umsókn og framlag úr Framkvæmdasjóði hefur verið byggt á.