Tekjustofnar sveitarfélaga

88. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 03:31:46 (4131)

     Frsm. minni hluta félmn. (Kristinn H. Gunnarsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Nú var svo að skilja á hæstv. iðnrh. að það væru ekki áform um það að móti breytingum á þessum fyrirtækjum í hlutafélag kæmu sérstakar bætur. Ég harma það og vil vekja athygli á þessu og mun gera það við umræðu um frv. þau sem væntanlega verða tekin til umræðu síðar á þessum vetri varðandi það að breyta Áburðarverksmiðjunni og Sementverksmiðjunni í hlutafélag og vekja þar einmitt sérstaklega athygli á að þær breytingar, ef fram ná að ganga, megi ekki á nokkurn hátt skerða fjárhag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.