Tekjustofnar sveitarfélaga

90. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 18:53:07 (4220)

     Sólveig Pétursdóttir :
    Hæstv. forseti. Ég vil láta þess getið að ég styð þetta frv. í heild sinni þrátt fyrir þær athugasemdir sem ég hef gert í fskj. II til félmn. við það atriði að landsútsvar var ekki fellt niður jafnhliða aðstöðugjaldinu. Ég tel þetta ákveðna mismunun í skattlagningu en vegna þeirrar yfirlýsingar sem hæstv. fjmrh. gaf við 2. umr. þessa máls og í trausti þess að tekið verði á þessu atriði og það lagfært, þá styð ég frv. og segi já.