Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Ég er hlynntur þeim samningi sem hér er til umræðu en tel óhjákvæmilegt að segja örfá orð um vinnubrögð hæstv. utanrrh.
Á sama tíma og hæstv. utanrrh. hefur spillt stórlega fyrir þinghaldi með ótímabærum yfirlýsingum í fjölmiðlum er vinnulag hæstv. ráðherra á þann veg að það er eins og sumt af því sem þarf að gera hreinlega týnist og gleymist og núna á síðasta vinnudegi fyrir jól þarf að hafa tvær umræður um mál sem vegna þessara vinnubragða er svona seint á ferðinni og athyglisvert að það er sami ráðherrann sem skammar þingið fyrir skipulagsleysi og skort á hefðbundnum vinnubrögðum sem stendur þannig að verki. ( Gripið fram í: Og eyða tímanum í kjaftæði.) Og núna blasir það við að þingheimur, allur sá sem ekki er í utanrmn., má bíða til að þóknast hæstv. utanrrh. meðan utanrmn. er að vinna sitt verk. Ég vil ekki fara að nota hér þung orð um hæstv. ráðherra, en ég held að ráðherrann sé í sérflokki hvað vinnubrögð snertir.