Afbrigði um dagskrármál

91. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 19:59:01 (4234)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Til þess að þau tvö mál, sem á dagskrá þessa fundar eru, megi koma á dagskrá og til umræðu þarf að leita afbrigða þar sem of skammt er liðið frá útbýtingu þingskjala og fyrri umr. Hafði forseti hugsað sér að leita afbrigða um bæði dagskrármálin í einu ef ekki koma athugasemdir þar um. ( ÓÞÞ: Ég fer fram á að það verði borið upp hvort í sínu lagi.)