Frestun á fundum Alþingis

91. fundur
Þriðjudaginn 22. desember 1992, kl. 20:03:25 (4237)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að hvor tveggja aðferðin gæti gengið í tilviki eins og þessu. Venja hefur þó oftar staðið til að þessari aðferð væri beitt. Ég tek það fram að það stendur ekki til af hálfu ríkisstjórnarinnar að notfæra sér neitt með stjórnskipulegum hætti þá þætti sem þessu mundu fylgja.