Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 77 . mál.


377. Breytingartillaga



við frv. til l. um gagnkvæma viðurkenningu á menntun ríkisborgara í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og á Norðurlöndum til starfsréttinda á Íslandi.

Frá Sigríði A. Þórðardóttur.


    Við 2. gr. Í stað orðsins „jafnsetta“ komi: jafngilda.

Greinargerð.

    Þegar menntamálanefnd afgreiddi frumvarpið frá sér til 2. umr. fórst fyrir að gera tillögu um breytingu á 2. gr. þess í samræmi við breytingartillögur nefndarinnar við 1. gr. Með breytingartillögu þessari er tryggt að samræmi sé í orðalagi 1. og 2. gr. um það atriði sem um er að ræða.