Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 304 . mál.


668. Nefndarálit



um frv. til l. um afnám laga nr. 97 27. desember 1973, um löndun á loðnu til bræðslu, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið en þar er lagt til að lög um löndun á loðnu til bræðslu, nr. 97/1973, verði afnumin. Lögin voru sett vegna sérstakra aðstæðna sem eru ekki lengur fyrir hendi.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins. Anna Ólafsdóttir Björnsson, fulltrúi Samtaka um kvennalista, sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi, og er hún samþykk áliti þessu.

Alþingi, 9. febr. 1993.



Össur Skarphéðinsson,

Árni R. Árnason.

Guðjón A. Kristjánsson.


varaform., frsm.



Guðmundur Hallvarðsson.

Halldór Ásgrímsson.

Jóhann Ársælsson.



Stefán Guðmundsson.

Steingrímur J. Sigfússon.

Vilhjálmur Egilsson.