Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 397 . mál.


1059. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 57/1988, um framhaldsskóla, sbr. l. nr. 107/1988 og nr. 72/1989.

Frá meiri hluta menntamálanefndar (SAÞ, RG, VS, KÁ, BBj, ÓÞÞ, ÁJ, TIO).



    Við 1. gr. Efnismálsgreinin orðist svo:
    Menntamálaráðherra er heimilt að efna til tilraunastarfs í starfsnámi í samráði við einstaka skóla og víkja þá frá ákvæðum þessara laga ef nauðsyn krefur. Slíkt tilraunastarf skal að jafnaði ekki skilgreint til lengri tíma en tveggja ára í senn og skal skipulagt í samvinnu við fulltrúa atvinnurekenda og launþega í viðkomandi starfsgrein.