Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 188 . mál.


1145. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 21 5. maí 1990, um lögheimili.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    Á eftir 3. mgr. 4. gr. laganna kemur ný svohljóðandi málsgrein:
    Manni, sem býr á stofnun samkvæmt skilgreiningu 18. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 82/1989, skal heimilt að eiga áfram lögheimili í því sveitarfélagi þar sem hann hafði fasta búsetu áður.