Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 212 . mál.


1179. Nefndarálit



um frv. til l. um hönnunarvernd.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Gunnar Guttormsson, forstjóra Einkaleyfastofunnar, og lögfræðingana Ellý K. J. Guðmundsdóttur og Ástu Valdimarsdóttur sem eru ásamt Gunnari Guttormssyni höfundar frumvarpsins. Þá barst nefndinni umsögn um frumvarpið frá Form Ísland, félagi áhugamanna um hönnun.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingartillögurnar eru að mestu leyti orðalagsbreytingar sem miða að því að gera ákvæði frumvarpsins skýrari.
    Kristín Einarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. maí 1993.



Össur Skarphéðinsson,

Pálmi Jónsson.

Guðjón A. Kristjánsson.


form., frsm.



Vilhjálmur Egilsson.

Guðjón Guðmundsson.

Svavar Gestsson.



Páll Pétursson.

Finnur Ingólfsson.