Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 187 . mál.


1198. Nefndarálit



um frv. til l. um bann við sölu á eignum ríkisins án lagaheimilda.

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og farið yfir þær umsagnir sem borist hafa. Eru þær allar jákvæðar. 2. minni hluti nefndarinnar telur afar brýnt að nú þegar séu sett í lög ákvæði um bann við sölu á eignum ríkisins án lagaheimilda. Ekki er ástæða til að bíða eftir að botn fáist í þá vinnu sem farið hefur fram á vegum fjárlaganefndar um málið.     Annar minni hluti leggur því til að málið verði samþykkt.

Alþingi, 6. maí 1993.



Jóhannes Geir Sigurgeirsson,

Kristín Ástgeirsdóttir.

Steingrímur J. Sigfússon.


frsm.



Halldór Ásgrímsson.