Ferill 539. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 539 . mál.


1239. Nefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1992, sbr. lög nr. 118/1992.

Frá fjárlaganefnd.



    Nefndin hefur haft frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1992 til athugunar. Frumvarp þetta er annað fjáraukalagafrumvarpið sem lagt er fyrir Alþingi til samþykktar á umframgreiðslum úr ríkissjóði frá heimildum fjárlaga 1992. Alþingi samþykkti í desembermánuði 1992 fjáraukalög, nr. 118/1992, en það fól í sér auknar greiðsluheimildir frá fjárlögum 1992 um tæpa 3 milljarða króna. Með frumvarpi þessu er sótt um heimildir til endanlegs greiðsluuppgjörs A-hluta ríkissjóðs á árinu 1992.
    Fram hefur komið að í væntanlegum fjáraukalögum fyrir árið 1993 verði heimild til að flytja milli ára fjárveitingar vegna viðhalds- og stofnkostnaðar og enn fremur í nokkrum tilvikum rekstrargjöld vegna aðhalds og sparnaðar í rekstri á árinu 1992.     
    Í frumvarpinu kemur fram að greiðslur úr ríkissjóði séu nettó 2.491 millj. kr. lægri en heimildir gerðu ráð fyrir. Sótt er um viðbótarheimildir að fjárhæð 1.330 millj. kr. en á móti eru greiðsluheimildir lækkaðar um 3.821 millj. kr.
    Við afgreiðslu nefndarinnar á frumvarpinu gerðu fulltrúar fjármálaráðuneytisins grein fyrir einstökum viðbótargreiðsluheimildum sem óskað var eftir frekari skýringum á. Þá kallaði nefndin til fulltrúa Ríkisendurskoðunar sem gerði grein fyrir athugasemdum stofnunarinnar sem fram koma m.a. í skýrslu hennar um framkvæmd fjárlaga árið 1992.
    Að lokinni athugun fjárlaganefndar á frumvarpinu og að teknu tilliti til þeirra skýringa, sem hún hefur fengið frá fjármálaráðuneytinu og Ríkisendurskoðun, fellst hún á tillögur þær um viðbótarfjárheimildir sem fram koma í frumvarpinu og leggur til að það verði samþykkt.

Alþingi, 6. maí 1993.



Sturla Böðvarsson,

Einar K. Guðfinnsson.

Árni M. Mathiesen.


varaform., frsm.



Gunnlaugur Stefánsson.

Jón Kristjánsson,

Guðmundur Bjarnason,


með fyrirvara.

með fyrirvara.



Margrét Frímannsdóttir,

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,

Guðrún Helgadóttir,


með fyrirvara.

með fyrirvara.

með fyrirvara.



Össur Skarphéðinsson.

Guðjón Guðmundsson.