Fundarstjórn forseta og stuðningur við setningu bráðabirgðalaga

75. fundur
Mánudaginn 24. janúar 1994, kl. 16:59:34 (3345)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti frábiður sér aðdróttanir hv. þm. í garð forseta og forsrh. Þær eiga ekki við nein rök að styðjast. Forseti vill upplýsa þingmanninn um að forseti hefur nú þegar lýst því yfir að hún muni taka til skoðunar þær athugasemdir sem hafa komið varðandi dagskrána á fundinum á morgun. Það gerist ekki héðan úr forsetastóli.