[17:29]
Jóhann Ársælsson :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er mín skoðun að þarna þurfi að vanda sig mikið því það eru á ferðinni æðimismunandi sveitarfélög sem eiga að fara að taka við þessu verkefni. Ég sé nú ekki alveg fyrir mér hvernig á að leysa málin að sumu leyti. Annars vegar er verið að hvetja sveitarfélögin til sameiningar. Hins vegar er verið að gefa út loðnar yfirlýsingar um það að ekki eigi að gera upp á milli barnanna sem eiga að sækja skólana á þessum svæðum. Er það þá þannig að þau sveitarfélög sem ekki munu sameinast og verða áfram smá, eigi að fá það mikla jöfnun úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eða með öðrum aðferðum að engu máli skipti um rekstur skólanna? Eða verður það þannig að það myndast tvenns konar sveitarfélög í þessu landi? Og það er það sem ég óttast að muni gerast með stefnu ríkisstjórnarinnar, að það verði til tvenns konar sveitarfélög. Við sjáum það fyrir okkur að nú þegar er búið að ákveða að hér eigi að vera í gangi einhvers konar tilraunasveitarfélög sem taka að sér meiri verkefni en önnur. Það eigi jafnvel að fjölga þessum tilraunasveitarfélögum. Yfirlýsingar hafa heyrst um það. Síðan kemur inn þetta vandamál, að menn þurfa að taka afstöðu til þess t.d. hvort menn sameinast öðrum sveitarfélögum um rekstur skóla, ef sveitarfélögin á svæðinu hafa ekki verið sameinuð. Og er það þá endilega víst að stærri aðilarnir séu tilbúnir að mynda félag með þessum litlu aðilum til þess að greiða niður þann kostnað sem hlýtur að verða vegna reksturs skólanna og þjónustustarfseminnar sem m.a. var minnst á hér áðan á þessum svæðum? Ég held að þar geti myndast verulegt vandamál sem þarf að taka á og þessi mál þarf auðvitað að ræða hér í þinginu og koma með þau skýr og klár þannig að alþingismenn geti tekið afstöðu til þeirra.