Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 14:23:41 (3363)


[14:23]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Vegna fyrirspurnar hv. 4. þm. Norðurl. v. er rétt að ítreka að það hefur margsinnis komið fram af hálfu ríkisstjórnarinnar að hún væri tilbúin til þess að festa efnisákvæði bókunarinnar í lög. Fram til þessa hefur málið hins vegar ekki verið þannig vaxið, að okkar mati, að það dygði til þess að leysa deiluna. En það hefur verið ljóst mánuðum saman að ríkisstjórnin væri reiðubúin til að beita sér fyrir slíkri lögfestingu.