Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 18:59:02 (3407)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill vekja athygli á að það er hægt að biðja um orðið nú um fundarstjórn forseta. Hér er til umræðu frv. til laga, og hefur verið til umræðu í allan dag og lítur forseti svo á að ekkert sé því til fyrirstöðu að halda umræðu áfram um málið.