[21:39]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. 5. þm. Austurl. reynir að friða samvisku sína með því að fara nokkuð aftur í tímann til að leita að setningu bráðabirgðalaga. Það hefur reyndar komið fram hér að stjórnarskránni hefur verið breytt í millitíðinni. Ég vil ráðleggja hv. 5. þm. Austurl., sem meðlimi í forsætisnefnd Alþingis, að verja tíma sínum frekar í að verja heiður þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu heldur en að vera
að beina spjótum sínum að okkur framsóknarmönnum vegna þess að ég lýsti því yfir hér áðan að ég kannast ekki við þau vinnubrögð að ekki hafi verið höfð samráð við þingmenn Framsfl. þegar bráðabirgðalög hafa verið sett. En hins vegar eru aðstæður allar breyttar þannig að það er alger óþarfi að standa að málum eins og nú hefur verið gert. Það er hægt að kalla saman þingið með dags fyrirvara. Sú er breytingin. Og meðlimur í forsætisnefnd, eins og hv. 5. þm. Austurl. er, ætti að verja þingið að þessu leyti gagnvart ríkisstjórninni sem sækir á með vinnubrögðum sem hafa afhjúpast hér í kvöld með lítilsvirðingu við þingmenn a.m.k. annars stjórnarflokksins.