Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 21:43:52 (3446)


[21:43]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. 5. þm. Austurl. fer ekki að mínum ráðum heldur notar tíma sinn hér í andsvari til að hafa uppi getsakir um það að fyrir um áratug eða svo höfum við þingmenn Framsfl. vitað um það þegar þingið var sent heim, að það ætti að setja bráðabirgðalög. Þetta er náttúrlega algerlega út í bláinn og sýnir bara að hv. 5. þm. Austurl. tekur ekki góðum ráðum og vill ekki svara því sem ég beini til hans í mestu vinsemd, að nota tíma sinn hér til að verja þingið fyrir ríkisstjórninni og heiður þess.