Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 22:33:12 (3459)


[22:33]
     Jón Kristjánsson (um fundarstjórn) :
     Herra forseti. Mér hefði verið ljúft að doka svo hægt væri að ljúka því að bera af sér sakir, en erindi mitt í umræður um fundarstjórn er að taka undir þá beiðni sem hér hefur komið fram að þessum umræðum verði frestað. Ég ber fram þá ósk vegna þess að hér hafa komið fram upplýsingar um meðferð þessa máls sem nauðsynlegt er að ræða við hæstv. forsrh. þegar hann mætir til þings. Ég vil því eindregið mælast til þess að sú beiðni að fresta þessari umræðu verði tekin til meðferðar.