Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 22:51:12 (3472)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti vill ítrekað og aftur segja það sem hann hefur sagt áður að það sé ekki ástæða til að fresta þessum umræðum og óskar eftir því að hv. alþm. lúti þingsköpum og stjórn forseta á fundinum þó að sú stjórn þóknist ekki öllum skoðunum hv. þm. en þeir lúti þó fundarstjórn þannig að fundurinn geti haldið eðlilega áfram með það dagskrármál sem hér liggur fyrir.
    Hv. 8. þm. Reykn. óskar að bera af sér sakir.