[15:32]
Svavar Gestsson :
Virðulegur forseti. Þetta mál snýst ekki um það að einstakir þingmenn sýni fimi sína í málflutningi til eða frá. Það snýst um þá alvarlegu staðreynd að opinberar skrifstofur, lögskráningarskrifstofurnar, í landinu voru notaðar í skjóli yfirvalda til að brjóta niður verkfall sjómannasamtakanna. Það snýst um það. Það er alvarleg staðreynd. Og ég skora á hæstv. sjútvrh. að reyna að koma sér í aðrar stellingar áður en mikið lengra er haldið með þetta mál. Vegna þess að það er augljóst mál að sjómannasamtökin geta ekki treyst ráðherra sem misbýður trúnaði þeirra og réttum leikreglum í vinnudeilum með þeim hætti sem hæstv. sjútvrh. hefur gert. Þessi dónaskapur, þessi framkoma við sjómannasamtökin er með eindæmum, hæstv. forseti.