Samkomulag um lengd utandagskrárumræðu

78. fundur
Fimmtudaginn 27. janúar 1994, kl. 10:35:06 (3534)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill greina frá því að borist hefur til hans frá forseta þingsins þetta samkomulag sem forseti þingsins hefur gert við formenn þingflokka eftir því sem sá forseti sem hér stendur veit best. Hafi þar orðið á einhver mistök varðandi formann þingflokks Samtaka um kvennalista ber auðvitað að biðjast velvirðingar á því en forseti sá sem hér stendur hefur eigi haft neinar spurnir af því fyrr. Annað getur forseti ekki upplýst um þetta mál.