Samkomulag um lengd utandagskrárumræðu

78. fundur
Fimmtudaginn 27. janúar 1994, kl. 10:44:46 (3539)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill taka fram vegna orða hv. 2. þm. Vestf. að hér er rétt vitnað í 72. gr. þingskapalaga. Með tilliti til þess að hér kunna að hafa orðið á mistök telur forseti rétt eftir að umræðan er hafin að fulltrúar þingflokka hittist ásamt forseta þingsins, sem kemur væntanlega fljótlega hingað til hússins, og leitist við að ná samkomulagi um þetta mál og láta þá linna hið fyrsta þessum umræðum að sinni um stjórn þingsins þannig að hægt sé að taka til við umræðuna. Vænti ég að fulltrúar þingflokka geti fallist á að sú skipan sé viðhöfð.