Umræða um skýrslu Byggðastofnunar

79. fundur
Mánudaginn 31. janúar 1994, kl. 15:06:43 (3570)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :

    Vegna fsp. hv. 5. þm. Vestf. vill forseti upplýsa að það hafði verið áætlað að skýrsla Byggðastofnunar kæmi á dagskrá þingsins í fyrstu viku eftir að þing kom saman eftir jólahlé en af sérstökum ástæðum var það ekki hægt. Það er stefnt að því að skýrslan verði tekin til umræðu og afgreiðslu svo fljótt sem verða má. Það er ekki hægt að dagsetja það á þessari stundu en það verður væntanlega innan ekki langs tíma.