Seta embættismanna í sveitarstjórnum

79. fundur
Mánudaginn 31. janúar 1994, kl. 15:31:37 (3584)


[15:31]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég get tekið undir flest þau meginsjónarmið sem fram koma í máli hv. þm. í hans síðari ræðu. Ég hygg líka að við þessir tveir bæjarfulltrúar sem jafnframt erum þingmenn getum verið ásáttir um að ekki sé rétt að setja of þröngar skorður í þessum efnum.