Innflutningur á landbúnaðarvörum

80. fundur
Þriðjudaginn 01. febrúar 1994, kl. 13:38:43 (3622)


     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Eins og fram kom í gær af hálfu forseta þá er þess að vænta, eins og þá var orðað, alveg á næstunni, að umrætt frv. komi fram. Forsætisnefnd hefur ekki komið saman síðan í gær og þess vegna stendur sá forseti sem nú gegnir störfum í þeirri meiningu að umrætt frv. sé alveg á næstu grösum.