Húsnæðisstofnun ríkisins

80. fundur
Þriðjudaginn 01. febrúar 1994, kl. 17:30:06 (3681)



[17:30]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Varðandi það hvort hugmyndir séu uppi um það að fara að ávaxta fjármagn Húsnæðisstofnunar erlendis þá er ekkert slíkt á döfinni. Hef ég ekki heyrt neitt um það hjá forráðamönnum Húsnæðisstofnunar að hjá þeim sé neitt slíkt á döfinni. Hér er eingöngu um að ræða að opnað sé fyrir fleiri ávöxtunarmöguleika á fjármagni Húsnæðisstofnunar en nú eru fyrir hendi þannig að hægt sé að ávaxta það með þeim hætti að fleiri ávöxtunarform séu undir en í boði standa hjá Seðlabanka.