Húsnæðisstofnun ríkisins

80. fundur
Þriðjudaginn 01. febrúar 1994, kl. 17:30:28 (3682)


[17:30]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir þessi svör. Mér fannst rétt að fá þetta strax á hreint áður en umræðan um þetta frv. byrjaði að öðru leyti þar sem nýjustu fréttir af fjármögnun lífeyrissjóðanna í landinu sem hafa verið þátttakendur í að fjármagna húsnæðiskerfið benda til að þeir muni fara að ávaxta eitthvað af sínu fjármagni erlendis. En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og er ánægjulegt að heyra að það skuli ekki vera fyrirhugað.