Varamaður tekur þingsæti

81. fundur
Miðvikudaginn 02. febrúar 1994, kl. 13:31:26 (3693)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 2. febr. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþingmaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Jón Gunnarsson oddviti, Vogum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Guðmundur Árni Stefánsson heilbr.- og trmrh.``


    Kjörbréf Jóns Gunnarssonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því skv. 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.