[12:11]
Pálmi Jónsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég tel að fyrra svar mitt við andsvari hv. 4. þm. Suðurl. hafi í rauninni þegar svarað þeim athugasemdum sem hér komu fram. Ég hef getið þess að gert er ráð fyrir því að eftir athugun þingnefnda geti skýrslur komið til umræðu í þinginu ef sérstök ástæða þykir til.