Starfsskýrsla Ríkisendurskoðunar 1992

82. fundur
Fimmtudaginn 03. febrúar 1994, kl. 12:11:38 (3751)


[12:11]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pálma Jónssyni fyrir þetta svar. En ég vildi þá nota tækifærið til að benda t.d. á eina skýrslu sem ég held að væri mjög nauðsynlegt að kæmi hér til umræðu og það er skýrslan um Landgræðslu ríkisins.