Framleiðsla og sala á búvörum

82. fundur
Fimmtudaginn 03. febrúar 1994, kl. 16:52:23 (3792)


[16:52]
     Egill Jónsson (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Hv. þm. talaði áðan um afgreiðslu frv. frá því í desember, talaði um hraða afgreiðslu og að ekki hefði fengist ráðrúm til þess að ræða málið og kalla til þess menn. Þetta undirstrikar það sem ég sagði áður og undirstrikar það alveg sérstaklega hvað þessi hv. þm. hefur ríkan hæfileika til þess að vera vitur eftir á því að öllum óskum hans í þessum efnum var sinnt í desember. Þær eru hins vegar of seint komnar fram á þessum degi til þess að færast til desembermánaðar sl. Þetta sýnir nú í hnotskurn hvernig þessum hv. þm. er innan brjósts um þessar mundir.