Tilkynning um utandagskrárumræðu

83. fundur
Mánudaginn 07. febrúar 1994, kl. 15:04:01 (3824)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að að loknum atkvæðagreiðslum á fundinum fer fram utandagskrárumræða um afskipti ráðherra af málefnum Ríkisútvarpsins, sjónvarps. Hún fer fram að beiðni hv. 8. þm. Reykn. og er reiknað með að umræðan standi í um eina og hálfa klukkustund.