[15:07]
Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Nú hefst utandagskrárumræðan svo sem tilkynnt hafði verið um afskipti ráðherra af málefnum Ríkisútvarpsins, sjónvarps. Málshefjandi er hv. 8. þm. Reykn., Ólafur Ragnar Grímsson, og beinir hann máli sínu til tveggja ráðherra, hæstv. forsrh. og hæstv. menntmrh. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa, þó þannig að hún mun ekki standa lengur en í um eina og hálfa klukkustund, sbr. 2. mgr. 72. gr. þingskapa. Samkomulag er um að umræðunni verði hagað þannig að málshefjandi og ráðherrarnir hafa 10 mínútur hver við upphaf umræðunnar. Síðan hafa aðrir þingflokkar allt að 15 mínútur hver til umráða og þingflokkar málshefjanda og ráðherra 10 mínútur.