[17:29]
Frsm. meiri hluta samgn. (Pálmi Jónsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þær athugasemdir sem hér komu fram frá hv. þm. sem hér talaði síðast hefði hann getað sparað sér ef hann hefði hlustað betur á ýmislegt í mínu máli. Fyrst er varðar 2. gr. Það er altítt að sú skipun sem þar er gert ráð fyrir að sé viðhöfð af hálfu ráðherra og þarf ekki að fara fleiri orðum um það.
Varðandi 10. gr. um eina reglugerð fyrir allar hafnir þá hefur ekki verið til þess ætlast heldur er orðum breytt til þess að gefa kost á að ein reglugerð gildi fyrir tvær eða fleiri hafnir sem standa saman að hafnasamlagi. Ef það væri ein reglugerð fyrir allar hafnir landsins þá væru nokkur atriði sameiginleg en síðan sundurgreint fyrir hverja höfn að öðru leyti.
Varðandi 13. gr. þar sem hann talar um gjaldskrá sem taki til þeirra hafna sem lög þessi ná til þá er það rétt, það eru til hafnir sem lög þessi ná ekki til, t.d. sem eru í eigu hlutafélaga.
Varðandi 18. gr. um ágreining sem ráðherra sker úr þá er svarið já. Ráðherra sker úr ágreiningi sem verða kann sem er mjög sjaldgæft um mannvirki á vegum hafna.
Um styrki til upptökumannvirkja þá hef ég rætt það áður, hér er um hámark að ræða. Hér er ekki um styrk úr Hafnabótasjóði heldur framlag úr ríkissjóði og hvort Stálsmiðjan í Reykjavík geti fengið slíkan styrk til upptökumannvirkja þá þykir mér það mjög ólíklegt. Það yrði þá að vera á fjárlögum og í tengslum við það að Reykjavíkurhöfn og þau upptökumannvirki sem væru í tengslum við hana væru allt í einu farin að njóta styrks sem ekki hefur verið til þessa.