Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

86. fundur
Miðvikudaginn 09. febrúar 1994, kl. 14:01:08 (3936)

[14:01]
     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Á þskj. 422 er einnig brtt. sama efnis frá 2. minni hluta allshn. Rökin fyrir þeirri brtt. voru þau að fyrsta brtt. 2. minni hluta yrði samþykkt. Sú brtt. hefur nú verið felld og því eru ekki lengur þau rök fyrir hendi. Ég mun því ekki taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu. Ég vil jafnframt geta þess að ég vil kalla aftur til 3. umr. 3. brtt. á þskj. 422 þar sem á fundi allshn. í morgun kom fram hugmynd um breytingu við þessa brtt. að lokinni umræðunni í gær og ég vonast til þess að samkomulag geti orðið um þá brtt.