Afréttamálefni, fjallskil o.fl.

86. fundur
Miðvikudaginn 09. febrúar 1994, kl. 14:11:18 (3939)


[14:11]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að benda á ónákvæmt orðalag í greinargerð. Það verður að gæta þess vendilega að greinargerðin fái ekki lagagildi en lagabókstafurinn víki. Ég hygg því að það sé mjög nauðsynlegt að landbn. kveði skýrt á um það í nál. að hugmyndin sé sú að lagabókstafurinn standi.