Auðlindakönnun í öllum landshlutum

87. fundur
Fimmtudaginn 10. febrúar 1994, kl. 12:54:06 (3973)


[12:54]
     Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning, þá vona ég að það hafi komið fram í máli mínu í megintóni þess að ég er hlynntur þessari þáltill. og styð hana þó að ég hafi gert alvarlegar athugasemdir við framsetninguna á málinu í greinargerð tillögunnar.