[15:21]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Frú forseti. Ég vænti þess að innan skamms verði hægt að ganga til samninga um kaup á björgunarþyrlu. Eins og kunnugt er þá ákvað ríkisstjórnin í maímánuði sl. að fela mér og fjmrh. að leita eftir kaupum á björgunarþyrlu í samræmi við þær ráðleggingar sem fyrir lágu um hentuga og nægjanlega öfluga björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Í ágústmánuði lágu fyrir drög að samningi um kaup á notaðri björgunarþyrlu í samræmi við þær tillögur sem fyrir lágu um þyrlu sem fullnægði þeim kröfum sem gerðar hafa verið.
Það er svo deginum ljósara að í umræðum um endurskoðun á umsvifum varnarliðsins hér við land drógust málefni björgunarsveitar varnarliðsins nokkuð inn í þær umræður og hafa ugglaust haft nokkur áhrif á að dróst að taka afstöðu til þess samningsuppkasts sem fyrir lá. Því miður fór það svo að sú þyrla sem þarna um ræðir var seld fyrir skömmu. Unnið hefur verið að því að undanförnu að leita eftir mögulegum kaupum á annarri sambærilegri þyrlu sem uppfyllti þau skilyrði sem sett hafa verið og er það í gangi. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum undir höndum um möguleika á slíkum kaupum þá ætti að vera hægt að ljúka slíkum viðræðum innan skamms tíma þannig að við getum staðið við þau áform sem uppi hafa verið í þessu efni. En að öðru leyti tek ég undir með hv. fyrirspyrjanda að brýnt er að ljúka þessu máli.