[17:34]
Ragnar Arnalds :
Virðulegi forseti. 3. varaþm. Norðurl. v., Anna Kristín Gunnarsdóttir, sem hér sat á þingi í minni fjarveru, bar fram þá fsp. til félmrh. hvaða sveitarfélög veita sálfræði- og félagsráðgjöf sem kveðið er á um í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Það er nokkuð augljóst af fsp. að fyrirspyrjandi hefur sterkan grun um að það séu mikil vanhöld hvað það varðar að sveitarfélög sinni þessu verkefni sínu og því er fsp. fram borin.