[16:27]
Gunnlaugur Stefánsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég vona að við séum sammála hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson að hv. sjútvn. fái þetta mál að loknum umræðum til þinglegrar umfjöllunar og nákvæmrar skoðunar þar sem allir flokkar hafa sinn fulltrúa. Þar mun náttúrlega gefast tækifæri til þess að kalla til viðræðna alla þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta. Ég ræddi þetta mál frá ýmsum sjónarhornum og reyndi að skýra út mína afstöðu og míns flokks og ég trúi ekki öðru en hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson sé mér sammála um það að mál geti tekið breytingum eftir að það hefur verið lagt fram sem stjfrv.
Á hitt lagði ég ekki ekki síður áherslu í minni ræðu og geri aftur að hér liggur fyrir grundvöllur til samkomulags á milli stjórnarflokkanna. Ég benti líka á hvað þróunin í sjávarútvegi er ör. Bara á þeim fáu mánuðum síðan þetta frv. var fyrst lagt fram, þá koma inn á okkar borð ný verkefni sem við þurfum að takast á við samhliða þessu máli. Þess vegna tel ég að hér sé um grundvöll til samstarfs að ræða, en ég er viss um að niðurstaðan verður ekki orðrétt sú í textanum sem nú liggur fyrir og er til umræðu.