[17:15]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ólíkt flokki hv. þm. þá erum við kvennalistakonur afskaplega valddreifingarsinnaðar og við treystum byggðarlögunum sjálfum til þess að taka ákvarðanir um hvernig best verði staðið að úthlutun byggðakvóta. Og þetta er kannski mergurinn málsins. Að sjálfsögðu kemur það fyrst til kasta sveitarstjórnar að taka þá ákvörðun en þarna er m.a. um mjög misjafnar aðstæður og stærð byggðarlaga að ræða og þetta er eitt af því sem er ekki til, eins og í fleiri málum, nein patentlausn við.
Varðandi það ef trillur flytja á milli byggðarlaga þá geri ég ráð fyrir því að hv. þm. hafi skilið það að byggðakvóti þýðir það að kvótinn tengist byggðinni, ekki fleyinu, og ég geri ráð fyrir að það sé jafnmikill akkur fyrir hið nýja byggðarlag að fá þennan bát til veiða og ráðstafa honum kvóta eins og þess byggðarlags sem hann flytur frá vegna þess að við erum að tala um ákveðna atvinnusköpun sem þarna fylgir með eins og við þekkjum bæði.
Ég reyndi eftir bestu getu að taka þessar spurningar niður. Varðandi úthlutun innan ársins þá skil ég ekki alveg vandamálið en kannski getur hv. þm. útskýrt fyrir mér hvað vefst fyrir honum. Varðandi veðhæfni og skuldaskil þá erum við komin að afleiðingum núverandi kerfis. Afskaplega vondum afleiðingum þar sem við erum hreinlega að horfa upp á að skip eru gerð mismunandi veðhæf og eignir mismunandi veðhæfar út af því að þau ýmist tengjast kvóta eða ekki. Og þetta er bara kerfi sem ég er ekki dús við. Og ég held að hv. þm. væri fullsæmdur af því að gagnrýna líka.